„
Ég fékk mitt fyrsta götuhjól 2019 og pantaði mér í framhaldinu tíma í bikefit hjá Sigga. Það er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið og hef verið fastur gestur síðan. Það var engin sérstök ástæða fyrir minni fyrstu heimsókn - var ekki að glíma við meiðsl en vildi fyrirbyggja þau með góðri stöðu á hjólinu. Hef eytt ansi miklum tíma á hjólinu sl tvö ár og aldrei kennt mér meins sem ég vil fyrst og fremst þakka góðu bikefitti. Í síðustu heimsókn var verkefnið að koma mér í TT stöðu á racernum - “það er eins og að varalita svín” sagði Siggi.. en það tókst og í framhaldinu vann ég mína fyrstu TT keppni og er sannfærð um að fittið spilaði þar stórt hlutverk.
Siggi er ekki bara góður fittari heldur er hann hafsjór fróðleiks um æfingar, mataræði og svo er hann líka svo skemmtilegur. Takk fyrir mig 🙏🏼
— Berglind Árnadóttir