„
Siggi er fagmaður fram í fingurgóma. Hann hefur hjálpað mér að ná góðri stöðu á hjólinu þar sem mér liður sem best og að ná fram betra afli. Hann býr yfir mikilli þekkingu þegar kemur að líkamanum og réttri stöðu á hjólinu. Hann pælir, spegúlerar og leitar lausna þanngað til staðan á hjólinu er fullkomin. Siggi hefur einnig hjálpað mér og ráðlagt með teygju æfingar til þess að ná fram meiri liðleika fyrir hjólið.
Mæli 100% með að allir hjólarar, bæði keppnis eða áhugahjólarar fari í bikefit hjá Sigga. Það eiga það allir hjólarar skilið að líða sem alllra best á hjólinu og hjóla lengra og njóta meira.
— Hafdís Sigurðardóttir